Yfirlýst markmið Druslugöngunnar er eftirfarandi.

Við viljum færa ábyrgð frá þolendum kynferðisafbrota yfir á gerendur.
Við viljum uppræta þá samfélagslegu fordóma sem endurspeglast í þeirri ofur-áherslu sem lögð er á klæðaburð, ástand og atferli þolenda í umræðunni um kynferðisofbeldi.

Nýjustu fréttir á drusluganga.org

Kveðja

Í nútímasamfélagi okkar Íslendinga þarf maður oft að staldra við og hrista höfuðið vonleysislega yfir samfélagsgerðinni og því sem þekkist í daglegu tali sem kvenfrelsi vestrænna nútímakvenna. Það gengur á ýmsu og virðist manni oft sem að skollaeyrum sé skellt við þeirri dapurlegu heimsmynd er við blasir ungdómnum, veruleika nauðgana, átraskanna, útlitsdýrkunar og hreinnar afturfarar í kvennabaráttunni.

 Í, að er virðist, eilífri baráttu manns sjálfs við að berjast á móti þróuninni fær maður að heyra það ítrekað að baráttan sé töpuð, maður sé nöldurseggur og óyndismanneskja og jafnvel þurfi aðeins að senda á mann einn „grjótharðann“.

Við undirbúning Druslugöngunnar barst hjálpin alls staðar að og mátti skýrt og skilmerkilega finna það á meðbyr þeim er við fengum að baráttumanneskjunum fer fjölgandi, samfélagið er að opnast, ný bylting er í augsýn.

Það er því miður sjaldnar sem  að karlmenn leggja kvennabaráttunni lið í verki, nema þá í þar til gerðum átaksverkefnum og er það því sem maður himin höndum taki þegar að baráttukarlar láta ljós sitt skína. Við Druslugöngukonur birtum því baráttuglaðar pistil skrifaðan af hinum dularfulla Sigurbirni, sem var egghvöss ádeila á samfélagið vel ígrunduð og greinilega skrifuð af manneskju sem að lét sig málin varða.

Það var okkur því mikill harmur að heyra af sviplegu fráfalli hans nú nýverið þe. manninum á bak við Sigurbjörn, Gunnar Hrafn Hrafnbjargarson og vildum við koma á framfæri dýpstu samúðarkveðjum til vina hans og fjölskyldu, óuppfyllanlegt skarð hefur nú verið hoggið í líf ykkar og er það okkar dýpsta von að þið finnið frið og styrk á erfiðum tímum. 

Við eftirlifendur höldum minningu hans lifandi með því að láta hugðarefni hans ekki gleymast, standa saman að réttlátari heimi og eins og Sigurbjörn sagði: " Í samfélagi jafnréttis fá allir eitthvað fyrir sinn snúð. Jafnrétti er ekki bara á ábyrgð kvenna. Það er líka á ábyrgð karla. Það er kominn tími til þess að karlar skeri upp herör gegn orðræðunni, að þeir axli ábyrgð. Það er kominn tími til þess að karlar hætti að vera öðlingar og byrji að vera femínistar"

fh. druslugöngukvenna
María Lilja Þrastardóttir

 

Ræða Steinunnar


Steinunn Gyðu- Og Guðjónsdóttir

Hér má lesa kraftmikla ræðu Steinunnar Gyðu- og Guðjónsdóttur starfskonu Stígamóta sem hún flutti fyrir gangendur druslugöngunar.

Fórnarlambið


Fórnarlambið

Hugleikur Dagsson sendi okkur þessa grein.

Ganga fyrir réttlæti


Thelma Hjaltadóttir

Ég mætti á Druslugöngufund á Ísafirði í vikunni þar sem verið var að gera skiltifyrir gönguna á morgun. Á meðan við föndruðum skiltin var mikið rætt og skrafað ogallar konurnar sem voru þarna samankomnar voru sammála um hversu ótrúlegt þaðværi á 21. öldinni séu enn verið að halda hlífisskildi yfir kynferðisafbrotamönnummeð því að varpa ábyrgðinni yfir á þolandann eða þá með því að þegja yfir brotum afþví að það er óþægilegt að tala um þau og engan má sakfella uns sekt er sönnuð.

Það er ástæða fyrir því að það er óþægilegt að tala um þessi brot, það er ástæðafyrir því að þau koma við kaunina á fólki. Það eru þessi brot sem höggva stærstuskörðin í sálu fórnarlamba.

Ég held að flestir séu sammála um að það sé erfitt að skilja hvað fær manneskjutil að fremja glæp af þessu tagi. Það er því skiljanlegt að maður leiti að ástæðu en allatíð virðist sem fólk leiti að ástæðunni á röngum stað, hjá þolandanum. Í stað þess aðspyrja hvað fékk manneskjuna til þess að nauðga er frekar hugleitt hvort fórnarlambiðhafi verið of ölvað, glennulega klætt eða ein á ferli á röngum stað o.s. frv.

Eru karlmenn ábyrgir gjörða sinna?


Haukur Viðar Alfreðsson

Á meðan þú sötrar kaffibollann þinn og lest þennan pistil er einhversstaðar verið að misnota barn kynferðislega. Tilhugsunin er hræðileg, og ég er ekki bara að tala um „einhversstaðar í heiminum“, heldur er ekki ósennilegt að þetta sé að gerast akkúrat núna einhversstaðar á þessari pínulitlu eyju sem við búum á.

Skiptir það einhverju máli hvernig barnið er klætt? Hefði barnið mögulega getað minnkað líkurnar á misnotkuninni hefði það verið í efnismeiri fötum? Ég veit þetta hljómar fáránlega. Lítil börn hafa sjaldnast nokkuð um það að segja í hvernig fötum þau eru. Gott og vel. Hefði barnið mögulega sloppið við skítugar krumlur níðingsins ef foreldrar þess hefðu klætt barnið í efnismeiri föt? Að sjálfsögðu ekki. Allt eru þetta fáránlegar spurningar. Sá sem þarf að spyrja slíkra spurninga af fullri alvöru gengur að öllum líkindum ekki heill til skógar.

« PreviousNext » 1 2 3

Banki: 0101-26-100839  kt: 580711-0730

Síðan er í vinnslu,

allar ábendingar og efnissendingar velkomar í rafpósti á osk.gunnlaugsdottir@gmail.com