Forsíða > Aðsendar greinar > Ræða Steinunnar

Ræða Steinunnar

Posted by admin on July 26, 2011


Steinunn Gyðu- Og Guðjónsdóttir

Hér má lesa kraftmikla ræðu Steinunnar Gyðu- og Guðjónsdóttur starfskonu Stígamóta sem hún flutti fyrir gangendur druslugöngunar.

Ágætu druslur!

 

Ofbeldi er alltaf á ábyrgð ofbeldismannsins.

En í dag búum við í samfélagi þar sem viðhorf okkar allra til nauðgana eru svo skökk og skæld að segja mætti að samfélagið sé gegnsýrt af nauðgunarmenningu.

Nauðgunarmenning er sú staðreynd að langflestir þolendur ofbeldis telja sig bera í það minnsta hluta af ábyrgðinni á því að hafa verið nauðgað.

Nauðgunarmenning eru forvarnir sem beinast að því að segja konum og börnum að passa sig.

Nauðgunarmenning er yfirmaður kynferðibrotadeildar lögreglu sem kennir áfengisdrykkju fórnarlambs um nauðganir og segir þær ekki á ábyrgð neins nema viðkomandi sem er útsettur fyrir því að lenda í einhverjum vandræðum. 

Nauðgunarmenning er fyrirspurn sem barst á Stígamót um það hvort stúlka mætti sækja aðstoð til okkar ef hún var undir áhrifum áfengis þegar hún var beitt kynferðisofbeldi.

Nauðgunarmenning eru fjölmiðlar sem fjalla um nauðgun sem „samskiptavandræði.“

Nauðgunarmenning er  fyrirsögn í dagblaði um að fullorðnir kaupi sér kynlífsþjónustu grunnskólabarna. Síðast þegar ég athugaði heitir það að nauðga barni.

Nauðgunarmenning eru meint fórnarlömb, meintra ofbeldismanna í meintum nauðgunarmálum sem meintar tilkynningar bárust um! Hvað eru þau eiginlega að meina!?

Nauðgunarmenning er yfirmaður útihátíðar sem telur grasrótarsamtök gegn kynferðisofbeldi nærast á því að nauðganir sé til staðar og reyni frekar að ýta undir vandamálið heldur en hitt.

Nauðgunarmenning er framhaldsskólakennari sem heldur því fram að „undir niðri dauðlangi konur í nauðgun“

Nauðgunarmenning er fótboltamaður sem notar frasann „andskotans kona ertu“ til þess að niðurlægja mótherja sinn

Nauðgunarmenning eru tónlistarmenn sem kalla konur hórur

Nauðgunarmenning er ríkissaksóknari sem lítur svo á að í dag sé bara allt kært þrátt fyrir að ljóst sé að aðeins pínuponsulítið brotabrot af nauðgunum sem eru kærðar.

Nauðgunarmenning er samfélag þar sem algengustu ástæðurnar fyrir því að fólk kærir ekki kynferðisbrot er sú að það skammast sín fyrir það sem gerðist og telur ofbeldið vera sér að kenna.

Nauðgunarmenning er þessi sterka tenging milli kynlífs og ofbeldis. En hlustið nú, klám er ekki kynlíf. Og nauðgun hefur ekkert með kynlíf að gera. Nauðgun er misbeiting á valdi í skjóli samfélagslegrar samþykktar.

Nauðgunarmenning eru foreldrar, kennarar, prestar, löggur, þjálfarar, meðferðafulltrúar og svo margir, margir aðrir sem misnota valdastöðu sína gagnvart börnum og öðrum skjólstæðingum og nauðga þeim.

Nauðgunarmenning er bæjarstjóri sem sér sig knúinn til þess að taka það fram að kynferðisleg misnotkun á börnum í bænum hafi ekkert með sveitarfélagið að gera.

Nauðgunarmenning eru undirskriftasafnanir til stuðnings dæmdum kynferðisbrotamönnum.

Nauðgunarmenning eru fjölskyldur sem þurfa að flytjast búferlum vegna aðkasts eftir að einhver fjölskyldumeðlima stígur fram og segir frá nauðgun.

Nauðgunarmenning eru nauðgunarbrandarar að hætti Gilzeneggers.

Nauðgunarmenning er að segja við dóttur sína Ekki labba ein heim“, Ekki týna vinkonum þí num“, Passaðu að drekka ekki of mikið“, ekki fara þangað, ekki klæða þig svona, ekki sitja svona, ekki horfa svona, ekki vera svona...

NEI! Nú er komið nóg!

Við megum andskotans vera alveg eins og við viljum.

Þess vegna erum við hér í dag og ekki bara hér heldur líka á Ísafirði, Akureyri og í Keflavík.

Við ætlum að breyta og við munum breyta þessari nauðgunarmenningu.

Og setja ábyrgðina þar sem hún á heima. Hjá ofbeldismanninum.

 

Innblásið af greininni Rape Culture 101 eftir Melissu McEwan 

 

Comments:

Posted by Dash on
Why do I bteohr calling up people when I can just read this!
Posted by hdxqoqcw on
C4lMyj lylqkzxkfysq
Posted by tnrjslvyrfy on
UKFheh , [url=http://hkhvztglakxk.com/]hkhvztglakxk[/url], [link=http://wzydqjdilaua.com/]wzydqjdilaua[/link], http://cvyklklzxylb.com/
Posted by lnlchop on
kNlWP9 pngbrbwenffz
Posted by czizkskjn on
xZ75VK , [url=http://eyeoeuxsqizp.com/]eyeoeuxsqizp[/url], [link=http://wofmukpozwuq.com/]wofmukpozwuq[/link], http://ulxgoyjewvht.com/
Leave a Reply



(Your email will not be publicly displayed.)

Please type the letters and numbers shown in the image.Captcha Code